Ný síða hjá okkur....

22. maí 2007 klukkan 13:15
Við ákváðum að prufa nýa síðu saman, þetta er nýtt blogg dót einfaldara að setja inn myndir og svoleiðs endilega kíkið á þetta og segið hvað ykkur finnst slóðin er
http://www.123.is/okkar
Kv. Bjössi

Atkvæði til SÖLU

08. maí 2007 klukkan 09:51
Þar sem ég held að nákvæmlega sama hvað maður kjósi fái maður yfirleitt sömu útkomuna þá er atkvæði mitt til sölu í kosningunum næstkomandi laugardag. Verðið er samningsatriði og þarf ekki endilega að vera í aurum og krónum. Ég kýs í Norvesturkjördæmi (Akranesi) og við erum að tala um lámarksverð 1 kassi af bjór.
Lýðræðið er lélegur brandari á Íslandi.
Kv. Bjössi
P.s. Ef eithverjir eru viðkvæmir að setja tilboð á netið svona beint þá er bent á póstfangið.
bjg@visir.is
Bjössi

Helgi hlátursins

01. maí 2007 klukkan 13:28
Helgin var alveg frábær hjá okkur við buðum Hörpu vinkonu Hilju í mat til okkar og að launum fékk ég að sína iðnaðarmanna hæfileika mína og henti upp nokkrum hillum heima hjá henni sem tókst bara með miklum ágætum held ég (ekki komnar neinar kvartanir ennþáHlæjandi).
Svo á laugard. var lagt upp í langferð, við fórum austur fyrir fjall en í staðinn fyrir að fara að Hæli beygðum við áður en við komum að Hnakka og Guggu bæ og héldum uppí Grímsnes þar sem Jósep bróðir minn og konan hans Regína eiga bústað, bústaðurinn er reindar á Miðengi sem Bjössi frændi á. Við Hilja, Soffía og Sigríður Björg héldum þanngað fyrst til að heilsa aðeins upp á heimilisfólk því maður fer syndsamlega sjaldan þangað eins og á svo marga aðra staði. Við tókum smá skoðunarferð til að sína Sigríði Björgu dýrin og það voru ekki fagnaðar fundir því hún var næstum jafn hrædd við dýrin og mamma sínGlottandi. Jónína og Ólöf komu svo áður en við vorum búin að fara í gegnum alla dýra flóruna.  En þegar að við vorum búin að fá nóg af fjósa lyktinni fórum við í halarófu að bústaðnum sem er hin glæsilegasti í alla staði.
Fljótlega eftir að allir voru komnir í hús fóru Jósep og Regína að elda og það enga smá máltíð, það var slátrað svínum og lömbum svo að enginn þyrfti að svelta og ég held að það hafi verið kraftaverk að maður náði að standa upp eftir matinn því hann var það góður að maður kunni sér nú varla hófs. Eftir matinn tók svo alvaran við.
Við ákáðum að fara að spila party & co og drógum í lið Jósep og Hilja lentu saman í liði sem átti eftir að kosta BLÓÐ svita og tár, Regína og Soffía sameinuðu krafta sína og vitsmuni (samt meira um krafta) og svo að endingu vorum ég og Jónína saman í liði og það verður að segjast eins og er að það var bara 1 af þessum liðum líklegt til sigurs og það vorum ég og Ninna sigga það tók okkur smá stund að stilla strengi okkar. Það var eitthver Björn Brown að þvælast fyrir Jónínu og ég var í því að segja hluti sem kostuðu okkur tíma og peninga. Þegar við vorum rétt að komast á flug var bústaðurinn umkringdur af ættingjum á hestum og skaut það nokkrum spilakonum mjög skellk í bringu. Við kíktum öll út á verönd að heilsa uppá fólkið þetta voru svona um 10 manns. Regína gat ekki staðist mátið og skellti sér á bak á náttbuxunum og tánum og þaut eitthvað í burtu. Þegar ég og Hilja sáum hana ríða í burtu þá bara urðum við að fara á bak því við höfum ekki setið hest síðan í síðustu réttum þannig við fórum líka á náttbuxum og skólaus í smá reiðtúr.
Eftir þetta klukkutíma skyndiættarmót héldum við áfram að spila og þá dundu ósköpinn yfir ... ég og Jónína vorum með afgerandi forystu, þegar leikurinn féll svo í hendur Jóseps og Hilju þurfti Jósep að teikna jarðskjálfta. Honum tókst það svo glimrandi vel að þau ætluðu að reyna að gefa hvort öðru HI FIVE en það tókst ekki betur en svo að þau börðu hvort annað í andlitið og uppskar bróður minn blóðnasir frá konunni minni en það var sem betur fer hægt að loka sárinnu með þremur rúllum af klósettpapír og hægt að halda áfram að spila. Soffía og Regína unnu hægt og rólega á nammiskálunumUllandi meðan ég og Jónína unnum spiliðSvalur án þess að ég sé nokkuð að grobba mig af því.
En þetta var mikið snilldar kvöld og ég vona innilega að þetta sé upphafið að mörgum svona góðum skiptum sem við hittumst svona, spilum og skemmtum okkur. Við Hilja segum a.m.k. takk æðislega fyrir okkur og sjáumst sem fyrst.....
Kv. Bjössi
Bjössi

Bærinn brennur

19. apríl 2007 klukkan 22:51
Það er nú voðalega svipað ástand hjá okkur skötuhjúunum sem er notla bara gott mál held ég. Við erum búin að vera duglega að vinna og vinna til að borga niður skuldir (ekkert smá gaman að slá svona á þetta svo um muni) við fórum uppá skaga um páskana og áttum þar yndislegan páskadag með fjölskilduni það var ekki leiðinlegt að verða vitni af Sigríði Björgu fá sitt fyrsta páskaegg(ekkert lítil gleði)
Reyndar lést Amma rétt fyrir páska 86 ára að aldri og það var auðvitað mikið sjokk fyrir okkur öll þar sem hún er búin að vera þarna fyrir okkur svo lengi sem elstu menn muna en hún var samt búin að vera lasinn og er örugglega kominn á betri stað núna með afa uppá arminn á leiðinni út að skemmta sér saman.
Við erum að fara austur um helginna sem verður bara æðislegt að geta slappað af í sveitinni það er eithvernvegin alltaf endurnærður af Hæli hvað sem maður er að gera ég held að það sé eithver orka í vatninu þarna uppfrá. En já ég vona að þið hafið það sem best og megi Hunt´s vera með ykkur í draumum ykkar og egið þið tómatsæla daga þar til næst.
Kv. Bjössi
Heyrðu já og svona út af fyrirsögninni Pravda not a cool place very hot, kebab burns in your mouth. múhaha
Bjössi

Gamall og Góður Húmor....

15. mars 2007 klukkan 14:18
Staðreyndir sem enginn vissi ef ekki væru til bíómyndir...
Stórar þakíbúðir í New York, fullar af nýtískulegum húsgögnum, eru víst á mjög viðráðanlegu verði, sama þó leigjendur þeirra séu atvinnulausir. Annar helmingur eineggja tvíbura eru ávallt illmenni. Lendir þú í því að þurfa að aftengja sprengju er óþarfi að hafa áhyggjur af því hvaða vír skuli klippa. Þú munt alltaf velja þann rétta Þú veist líka alltaf nákvæmlega hvenær hún springur því á öllum sprengjum er búið að koma fyrir rafmagnsklukku sem telur niður að núlli með stórum, rauðum stöfum.
Þó þú slökkvir ljósin til að fara að sofa mun allt í svefnherberginu sjást greinilega áfram. Það verður bara kominn daufur, blár glampi á hlutina. Ef þú ert ljóshærð og falleg kona er mögulegt að þú verðir orðin heimsfrægur sérfræðingur í kjarnaklofnun, risaeðlum, egypskum fornmálum - eða bara hverju sem er - þegar þú nærð 22 ára aldri. Heiðarlegir og duglegir lögreglumenn eru yfirleitt skotnir til bana örfáum dögum áður en þeir fara á eftirlaun.Geðsjúkir glæpamenn reyna að komast hjá því í lengstu lög að eyða byssukúlum. Þess í stað leitast þeir við að myrða óvini sína með því að nota flókinn og hægfara tæknibúnað sem inniheldur sprengiþræði, banvænar gastegundir, leysigeysla, vélsagir og hungraða hákarla. Fangar a.m.k. 20 mínútur til að sleppa. Í öllum glæparannsóknum er nauðsynlegt að fara a.m.k. einu sinni inn á strípibúllu. Í öllum rúmum eru sérstök L-laga rúmföt sem ná upp að handakrika á konunni sem í því liggur, en aðeins upp að mittinu á karlinum sem liggur við hliðina á henni. Í öllum innkaupapokum er a.m.k. ein franskbrauslengja og eitt knippi af gulrótum með laufríkum endum. Það er auðvelt að lenda flugvél, svo framarlega sem einhver í flugstjórnarturninum geti talað við þig og gefið þér leiðbeiningar. Ef þú ert falleg kona mun aldrei neitt koma fyrir andlitsmálninguna þína, sama þó þú hafir verið að kafa eða berjast við geimverur. Ef þú ert hins vegar of þung mun maskarinn renna niður á kinnarnar og varaliturinn klessast. Loftræstikerfi í byggingum eru alltaf fullkominn felustaður. Engum dettur nokkurn tímann í hug að leita að þér þar og þú getur skriðið um allt húsið án nokkurra vandræða. Loftræstikerfi passa líka alltaf nákvæmlega utan um þann sem þarf að fara upp í það, sama hvort sá er byggður eins og Bruce Willis eða John Candy. Mjög líklegt er að þú lifir af öll stríð sem þú getur lent í - nema að þú gerir þau banvænu mistök að sýna einhverjum mynd af ástinni þinni sem bíður heima. Ef þú ætlar að dulbúast sem þýskur liðsforingi er alls ekki nauðsynlegt að tala tungumálið. Þýskur hreimur dugar alveg. Karlmaður mun ekki sýna nein sársaukamerki þó verið sé að berja hann til óbóta. Hann mun hins vegar kippast til og vola þegar kona reynir að hreinsa sár hans. Þegar konur, sem gista í draugahúsum, athuga undarleg hljóð munu þær klæðast engu nema gegnsæjum nærfötum, sem þær voru einmitt í þegar bíllinn þeirra bilaði fyrir utan.
Bjössi

NÝR BÍLL SjibbbbbÍÍÍÍ

10. febrúar 2007 klukkan 16:49
Við vorum að fá okkur nýan bíl aldrei hélt ég að ég ætti eftir að fá mér skoda og vera í skýunum yfir því  við fengum okkur Skoda Oktaviu steingráa geðveikt töff 2005 módel ég hef aldrei átt svona nýan bíl sem er bara gaman Hlæjandi.
Annars er voðalega lítð af okkur að frétta reindar er ástæðann fyrir því að við fengum okkur nýan fák sú að gamli jálkurinn okkar dó í IKEA um síðustu helgi hann gafs bara upp greiið hætti að nenna að kúpla og svo við Hilja fengum bara nóg og ákváðum að skella okkur á nýan strax. Þetta er búið að eiga hug okkar allan síðustu vikuna þetta tók svo á Hilju að hún lagðist veik daginn eftir að kaupin gengu í gegn og er enþá að jafna sig.
Við ætlum að bara að slappa af þessa helgi og gera sem minst því hildur er að jafna sig, en næstu helgi verðum við bóndar og barnapíur, við brunum austur á skódanum því tengdó ætla að skella sér í smá dekur og menningarferð til höfuðborgarinnar. Það verður örugglega ynndislegt að fara í sveitina og slappa af heila helgi og reina að gera sem allra minnst nema kannski að reina að komast á hestbak sem væri bara snilld því við höfum ekki farið á bak síðan í réttunum en þetta kemur allt í ljós.
Kv. Bjössi

allt að ske eða hvað Ísland-baunaveldi???

30. janúar 2007 klukkan 18:03
Jæja svona svo að það komi fram eru komnar aðeins fleiri myndir úr bústaðnum.
En það  sem er líklega efst á baugi er leikurinn í kvöld maður þetta verður gjörsamlega klikkað ég er ekki alveg viss um að ég hafi taugar í að horfa á hann en maður verður að reyna.
Ég held að ég geymi það að skrifa meira þar til eftir leik þá verður annað hvort sungið og trallað eða blótað og ragnað.
Kv. Bjössi

Myndir

24. janúar 2007 klukkan 05:08
Jæja þá eru komnar nokkrar myndri úr bústaðnum reyndar eru þetta einu myndirnar sem að við tókum á okkar myndavél þannig það væri mjög vel þegið að fá myndir ef eithverjir voru með vélina á lofti. En endalaust takk fyrir mig. Mér fannst þetta klikkað skemmtileg helgi. þið eruð öll snillar.
Kv. Bjössi
Bjössi

Afmæli-Bústaðir-Fyllerí-Heitir pottar-almenn gleði

15. janúar 2007 klukkan 00:00
Eins og flestir ættu að vita er ég að fara að halda uppá 25 ára afmælið mitt næstu helgi það er að segja 19 til 21 janúar og ég ætlast til þess að sem lang lang flestir mæti að sjálfsögðu það verða áfengar veitingar í boði og alls ekki lítið af því.... En það sakar samt aldrei að koma með með sér svona uppá öryggiðHlæjandi.
Bústaðirnir eru uppí Bifröst og ekkert mál að bjalla á mig uppá að fá nánari leiðbeningar.
En fyrst og fremst er að láta sjá sig hvort sem það verður annan daginn eða báðaHlæjandi.
Kv. Bjössi
Bjössi

Það gerist margt á einum jólum skal ég segja ykkur.....

04. janúar 2007 klukkan 19:54
Jæja Jólin búin og allt gott um þau að segja við fórum uppá skaga á Þoráksmessu og þar var að sjálfsögðu hefðbundinn matur Skata a la okkar kynslóð a.k.a. Pitsa Glottandi .
En við Hilja byrjuðum á því á Aðfangadags morgun að setja upp hringa ég gætti ekki verið glaðari með það að þessi ynndislega stelpa skuli hafa viljað trúlofast mérHlæjandi
Síðan komu jólin með öllu tilheyrandi ynndislegum mat eins og Mömmu er von og vísa til það klikkar ekki hjá henni frekar en fyrri daginn. Svo kom pakkaflóðið ég fékk alveg fullt af frábærum gjöfum svo sem Ryksugu (þá get ég loksinns skilað þeirri sem ég er búin að vera með í láni frá soffíu síðan við fluttum hérna inn) bol, fleig, kertastand og skálar, skít í flösku (það hélt Hilja fyrst a.m.k.) en það reindist vera svona dót sem maður setur vodka út í og fær svona lakrís bargð og svona ognáttslopp og nudd frá ástinni minni og margt fleira þetta var allt til mikilar príði
og takk fyrir mig og okkur.
Svo á jóladag fórum við austur fyrir fjall í laxárdal í jólaboð hjá ömmu hennar Hilju ég var búin að heyra mikið um kökurnar sem hún bakaði og það var engu logið ég kom gjörsamlega rúllandi þarna út blásandi eins og hvalur þetta var ekkert smá gott þegar við loksins náðum áttum aftur héldum við að Hæli þar sem við eiddum næstu 2 dögum í vellistingum og afslöppun sváfum út og lásum og borðuðum góðan mat sem er náttúrulega það sem jólin snúast um er það ekki....
Á miðvikudeginum fórum við svo í bæin því að Hilja þurftir að vinna og við þurfturm að fara að taka endanlega ákvörðun um hvort að við ætluðum að flytja í sveitina því ég þurftir að fara að segja upp í vinnuni og það er skemmst frá því að segja að við tókum þá ákvörðun að verða nokkur ár í viðbót í bænum eftir miklar vangaveltur.
Ég vona að allt fólkið sem við þekkjum hérna í bænum sé ánægt með þá ákvörðun.
Þegar árið 2007 var að byrja að kíkja fyrir hornið vorum við Hilja í Mat hjá Pabba hennar og Sigurrós og þar var enn ein veislan boðið uppá þriggja rétta veislu sem samanstóð af Graflaxi, Lambafille og Mokkamúss og sem fyrr kann maður sér ekki hóf og ég var enþá pakk saddur þegar þetta herfilega áramótskaup hafði lokið við að misþirma og misbjóða húmornum í mér.
Við Hilja héldum síðan uppá perlu til að taka á móti nýa árinu með öllum túristonum og fylgjasm með stórum parti reykvíkinga eiða híruni í sprengjur og tilheyrandi það var klikkað gaman að sjá þetta frá perlunni. Við héldum svo heim að ná í veisluföng fyrir áramótapartý sem haldið var í stórahjalla sem var mjög fínt það var samt þannig að það voru margir sem mættu en fóru samt strax enda óskup eðlilegt þar sem það eru mörg partý á þessum tíma. Við Hilja fórum bara heim um 5 leitið kát og hress og mér heyrðist það vera meðaltímin á því hvernær fólkið fór í háttin þannig að við vorum ekki svo gömul í þetta skiptið.
En já þetta var Hátíðin í hnotskurn og ekki mikið meira um hana að segja held ég en ef þú hefur komist þetta langt í textanum þá ertu í góðum málum því ........

2007 er eins og allir vita það ár sem ég er að verða gamall og það er ekkert að gerast eithvertíman á árinnu þetta mun gerast 22. þessa mánaður en ég er ekki að láta ellikellu vaða yfir mig á skítugum skónum án þess að slást á móti því mun ég halda heljar partý helgina 19 til 21 til að djamma í það minnst einu sinni feitt áður en þessi skelfilegu tímamót renna uppÖskrandi . Ég er búin að taka á leigu 2 bústaði hlið við hlið þanngi það verða 2 pottar og að sjálfsögðu verður Bolla í boði ég á eftir að hafa betur samband við ykkur öll saman en bara að muna að taka helgina frá því þetta verður stuð.
Kv Bjössi forever young........... I hope
Bjössi

Auglýsing

Könnun

Hvað er það versta við Ísland???

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...